13mars
já það er nú blessuð blíðan hér á norðurlandinu... maður er bara æi góðu skapi og alles útaf þessu...
reyndar er ég í góðu skapi útaf því að hann jón minn er að koma í land og verður í sona viku eða eitthvað, það er alltaf gaman...
en mér finnst ég bara búin að vera geðveikislega dugleg síðustu daga, því að allt heima hjá mér er núna alveg einstaklega hreint,
og allir kassarnir sem að við notuðum þegar við fluttum inn í lok DESEMBER eru loksins farnir...
maður er búin að vera svo mikið lasin að maður hefur ekki haft orku í þetta fyrr en nú
já það verður gaman að fá hann jón minn heim, þótt það sé nú ekki langt síðan hann fór, hehe,

svo er það nú vonandi að hann jón hleypi mér eitthvað í tölvuna á meðan hann er heima,, því að við eigum þrjá kettlinga, algjörar dúllur en þetta eru samt sem áður litlir terroristar sem að ákváðu að naga hleðslusnúruna fyrir fartölvuna mína, svo að núna kviknar ekki á tölvunni því að batteríið er tómt...

en ég er farin bæjó
-krista-
09mars
herru já þá er maður aftur byrjaður að blogga... enn einu sinni... ég hef ekki neitt að gera þessa dagana svo að ég ætla bara að blogga soldið sona ásamt fleiru...
en málin standa þannig að ég þurfti að hætta í skólanum útaf veikindum og jón minn er á sjónum svo að ég sit bara ein heima með kettina okkar þrjá eða slappa af í heimsókn hjá tengdamúttu eða erlu systir jóns...
þar sem að í dag er 9. mars er 17 vikur og 1 dagur þar til að ég og jón giftum okkur, og maður er allur í svaka pælingum í sambandi við það...
tökum brúðarkjólinn sem dæmi :


en þetta er semsagt kjóllinn sem er er að vonast eftir:)
en maður er byrjaður að hlakka soldið mikið til... það er allt í einu orðið GEÐVEIKT stutt í að þetta gerist... svona miðað við að við trúlofuðum okkur í janúar 2006...:)
við jón erum nú ekki búin að pæla samt mikið í þessu öllu saman... maður hefur fengið að heyra af fólki sem að hefur verið búin að ganga frá öllu tengdu brúðkaupinu HEILU ÁRI áður en það er...
við erum nú ekki alveg svo ýkt :-)
en nú er ég farin bæjó
-krista-